.:: 1.2.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.

Jæja, fólk er farið að kvarta undan mynda- og fréttaleysi  hér á síðunni. Það er alveg satt, við erum bara löt við þetta  en nú verður bætt úr því. Magnús Þór fer nú alveg að verða 4 mánaða og hann  stækkar og dafnar mjög vel. Það nýjasta núna  er að hann er búinn að uppgötva röddina sína. Í síðustu viku „burraði“ hann út í eitt en nú er hann hættur því og farinn að æpa eða skríkja eins hátt og hann getur, alveg upp á háa C. Ofboðslega gaman hjá honum.  Svo um daginn neitaði hann allt í einu að fara að sofa um kvöldið, kom bara þvílík skeifa á hann og hann grét og grét. Við skildum ekkert í þessu því fram að því hafði hann ekki verið að kvarta neitt að ráði. En við tókum bara á því og nú gengur betur að fara að sofa. Annars hefur hann verið alveg eins og engill á daginn, er ofboðslega kátur á morgnanna, sefur svo 2-3 tíma í vagninum fyrir hádegi og svo aftur 2-3 tíma eftir hádegi og er hann yfirleitt bara sofnaður strax og húfan er komin á hann. Algjör draumur !!! Svo vorum við að uppgötva Leikhöllina sem er bara hérna rétt hjá okkur, aðeins 5 mínútur að labba. Þar er hægt að fara á ýmis námskeið. Við byrjuðum í ungbarnanuddi þar í gær og fannst honum það algjört æði. Nú verður hann sko pottþétt eins og pabbi sinn sem elskar nudd. Svo skráðum við okkur á tónlistarnámskeið fyrir 3-7 mánaða börn. Og ekki nóg með það, því við erum að fara að byrja í ungbarnasundi á morgun og hlökkum við fjölskyldan öll mikið til, en það er  hjá honum Snorra í Mosó. Þannig að það er sko nóg að gera. Mamman greinilega orðin þreytt á að hanga heima og tekur þetta bara með trompi.

Þar til næst, fjölskyldan í Hlíðargerðinu


.:: 1.2.2007 - Skrifað af :: Dóra ::.

Það er ekkert verið að spara brosið á nýjustu myndunum  Alger krúsíbolla!


.:: 19.9.2008 - Skrifað af :: obleswr ::.

BKTXdO  <a href="http://hjpmutyphgpr.com/">hjpmutyphgpr</a>, [url=http://nadvfkbieiec.com/]nadvfkbieiec[/url], [link=http://btfwzjsrmewc.com/]btfwzjsrmewc[/link], http://slchwueylabu.com/


.:: 16.1.2010 - Skrifað af :: qtenubx ::.

imSOx2  <a href="http://iegssjxlndje.com/">iegssjxlndje</a>, [url=http://nolfblfkzzue.com/]nolfblfkzzue[/url], [link=http://rmlsxenyhrwc.com/]rmlsxenyhrwc[/link], http://xndoagunuebd.com/


Nafn:
Skilaboð: