.:: 26.2.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.

Vá, febrúar fer bara að verða búinn og við enn og aftur löt að bæta inná síðuna.

Það skemmtilegasta í þessum mánuði var nuddið og sundið. Magnús Þór var sko alveg að fíla nuddtímana í botn. Hann var alltaf einn eftir á nuddbekknum þegar tíminn var búinn og vildi bara meira, hehe, á meðan hin börnin voru öll orðin þreytt og vildu komast burt. Hann var samt ekki að fíla sig alveg jafn vel í sundinu.  Þ.e.a.s. þegar kennarinn tók hann og hélt honum hátt hátt upp í loftið,  þá kom bara þessi þvílíka skeifa á hann. Og líka þegar kennarinn setti hann í kaf en svo var allt í lagi ef mamma setti hann í kaf.  Ekki sama hver er sko.

Það leiðinlegasta í þessum mánuði var lungnabólgan sem Magnús Þór fékk. Hann var með mikinn hósta og slím og kúgaðist oft af öllum átökunum. Hann fór á sýklalyf og fékk púst og er hægt og bítandi að jafna sig.  Við foreldrarnir vorum líka veik þannig að þetta er búið að vera algjört pestabæli hér síðustu 2 vikurnar. En við erum þvílíkt fegin að veikindin séu að taka enda því við erum orðin svolítið þreytt á að hanga alltaf inni. Hlökkum til að fara í sundið aftur og geta farið út að labba í vagninum.

En þrátt fyrir þessi veikindi þá hefur Magnús Þór verið ofboðslega hress og kátur. Hann er gjörsamlega að bræða okkur foreldrana þessa dagana. Hann brosir út í eitt og er farinn að hlæja hástöfum en bara þegar mamma og pabbi eru, ekki þegar það eru gestir, þá er hann bara voða hissa.  Svo er hann farinn að gera ýmsar kúnstir, farinn að velta sér marga hringi á gólfinu og aðal sportið er að horfa afturábak. Svo er líka rosa gaman að fara í kollhnísa og að láta toga sig upp og standa. Þá er hann svaka montinn með sig.

Við skötuhjúin fórum á þorrablót í byrjun febrúar og þá var Magnús Þór í pössun hjá ömmu Dóru á meðan.Þetta var fyrsta alvöru pössunin og gekk eins og í sögu. Hann var mjög góður allan tímann og ekkert mál að fara að sofa.  Annars rífumst við foreldrarnir um að fá að leggja hann í rúmið á kvöldin því það gengur svo vel. Hins vegar hefur hann verið að vakna oftar og oftar á nóttunni núna síðasta 1 1/2 mánuðinn og var hann farinn að vakna á 2 tíma fresti til að drekka. Það var orðið mjög þreytandi og lítill svefn þannig að nú síðustu daga höfum við gefið honum ábót (þurrmjólk í pela) fyrir nóttina og þambar hann heilan pela eins og ekkert sé og vaknar hann núna bara einu sinni til að drekka. Sefur frá svona 21-22 til svona 5-6, drekkur þá og sefur svo til 8-9. Þannig að þetta er allt annað líf núna, vonandi heldur þetta áfram.  Svo erum við að hugsa um að fara að gefa honum graut bráðlega.

Svo eru alltaf að bætast við frændfólk í hópinn.  Í janúar eignuðust Ásgeir og Maren litla stelpu, í febrúar eignuðust Auður og Frank litla stelpu, svo bætist áfram við í mars, júní, og ágúst (mömmu megin) og júlí (pabbamegin). Svaka gaman að fá svona marga krakka til að leika við í öllum boðunum.

Kveðja úr Hlíðargerðinu


.:: 2.3.2007 - Skrifað af :: Audur frænka ::.

Hæ lilleman Magnus Thor

Mega kvedja fra mer og Lillemus i Køben. Thu ert nu meiri myndar madurinn - en audvitad ekki vid odru ad buast med svona fina foreldra. Vid sjaumst i paskafriinu thegar vid komum i heimsokn til Islands.

Kær kvedja
Audur og Lillemus


.:: 19.9.2008 - Skrifað af :: ndjqzya ::.

DwfruM  <a href="http://emgsaatldunt.com/">emgsaatldunt</a>, [url=http://bwbnvyryztvs.com/]bwbnvyryztvs[/url], [link=http://buzmdzrcfwwv.com/]buzmdzrcfwwv[/link], http://lxafgqotqmtl.com/


.:: 16.1.2010 - Skrifað af :: ddwlmfybdhz ::.

7M5bFi  <a href="http://hrghraxyladb.com/">hrghraxyladb</a>, [url=http://pblhufoypqjd.com/]pblhufoypqjd[/url], [link=http://axhhrkygkjtr.com/]axhhrkygkjtr[/link], http://wrommarueumh.com/


Nafn:
Skilaboð: