.:: 3/14/2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.

Hæ hæ allir. Af okkur er allt gott að frétta.  Magnús Þór stækkar og stækkar með hverjum deginum. Hann er nú orðinn 5 mánaða og orðinn 7090 gr og 65,5 cm. Hann er orðinn það stór að hann er farinn að sofa einn inni í sínu herbergi. Það er nú vegna þess að um síðustu helgi gisti Magnús Þór eina nótt hjá ömmu Dóru og afa Magga og hann svaf svo rosalega vel einn inni í herbergi að við ákváðum að prófa heima og gengur það svona glimrandi vel. Hann rumskaði bara einu sinni í nótt og fékk að drekka, sofnaði svo strax aftur og svo vöknuðum við bara við það í morgun að hann var hjalandi inní rúmi. Þegar við kíktum inn til hans brosti hann bara út að eyrum, greinilega svakalega montinn með að vera kominn í sitt eigið herbergi. Hann byrjaði að smakka graut í síðustu viku og finnst honum hann algjört æði. Svo höfum við leyft honum að bragða epli, banana og gulrætur. Mæðginin byrjuðu á íþrótta- og tónlistanámskeiði  á mánudaginn og Magnús Þór var alveg að fíla sig í tætlur. Hann var reyndar voða hissa í byrjun en þegar við stóðum upp og fórum að dansa þá spriklaði hann fótunum á milljón og skríkti eins og hann gerir alveg upp á háa C. Hann er greinilega upprennandi dansari og söngvari drengurinn (eða fótboltasnillingur vill pabbinn meina). En nóg í bili. Settum inn nýjar myndir.


.:: 14.3.2007 - Skrifað af :: Dóra og Ægir ::.

Ekkert smá sætar nýjustu myndirnar, gaman að sjá frændurna skemmta sér saman í sundi. Voðalega er Magnús líka orðinn "fullorðinn" í vikunni, grautur og eigið herbergi, það er ekkert smá... sjáumst á föstudag!


.:: 18.3.2007 - Skrifað af :: Krissa, Biggi & Elísabet María ::.

Mikið er gaman að heyra hvað það gengur vel hjá Magnúsi Þór að sofa í sínu herbergi...ekkert smá duglegur strákur!
Flottar nýju myndirnar...sérstaklega af frændunum í sundinu 
Við þurfum endilega að leyfa frændunum að hitta Elísabetu Maríu fljótlega

Bestu kveðjur frá Kvisthaga


.:: 19.9.2008 - Skrifað af :: cfmpracecb ::.

UOPPkx  <a href="http://wikeyjfbdmng.com/">wikeyjfbdmng</a>, [url=http://kdvpbbpkpmto.com/]kdvpbbpkpmto[/url], [link=http://lcyemihchewz.com/]lcyemihchewz[/link], http://pryaaqmdctyj.com/


.:: 16.1.2010 - Skrifað af :: euzqxg ::.

mvXt7J  <a href="http://bypmgboiknky.com/">bypmgboiknky</a>, [url=http://dflhtvrdlnbi.com/]dflhtvrdlnbi[/url], [link=http://vxjvpnisyuln.com/]vxjvpnisyuln[/link], http://eqgaitrdfiio.com/


Nafn:
Skilaboð: