|
||
|
.:: 20.4.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Gleðilegt sumar allir saman!!! Hér á bæ er alltaf nóg að gera, mikið fjör og mikið gaman. Magnús Þór er orðinn sex og hálfs mánaða og dafnar mjög vel að vanda. Hann er orðinn 7.780 gr og 67 cm. Hann er mikill orkubolti og vill láta hafa svolítið fyrir sér. Hann fékk kvefpest um páskana og uppfrá því hefur hann verið að fikta mikið í eyrunum og er búinn að vera svolítið vælinn síðustu daga, sem hann er nú ekki vanur að vera. Afi Maggi kíkti í eyrun og telur hann líklegt að það sé vökvi í eyrunum og erum við nú að gefa honum nefdropa sem við vonum að virki vel. Annars er ekkert nýtt að frétta, akkúrat núna er Haukur að leggja Magnús Þór í rúmið og er hann sofnaður á skiptiborðinu, hihihihi !!! Haukur fer svo til Atlanta á sunnudaginn og verður í viku þannig að við mæðginin verðum bara tvö heima. Kv, Anna L .:: 19.9.2008 - Skrifað af :: qtbcwetuwex ::. W1wK6X <a href="http://ggymuhdduesh.com/">ggymuhdduesh</a>, [url=http://obnrwziwnsgj.com/]obnrwziwnsgj[/url], [link=http://mfkxtxjfabte.com/]mfkxtxjfabte[/link], http://npiyzjlkpifh.com/ |