|
||
|
.:: 17.10.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Þá er snáði orðinn sjö og hálfs mánaða. Skelfilegt hvað tíminn er fljótur að líða. Það gengur allt sinn vanagang hér hjá okkur. Vakna, borða, leika, sofa, vakna, borða, leika, sofa o.s.frv. Magnús sefur mjööööög vel, borðar eins og svín (enda orðinn algjör fitubolla) og finnst geggjað gaman að leika. En hann er sko enginn dundari, honum finnst lang skemmtilegast þegar verið er að leika við hann, þá er hann svo áhugasamur að hann ræður varla við sig af kæti en þegar hann er einn þá verður hann ofboðslega pirraður. En hann er nú samt allur að koma til, t.d. í gærkvöldi heyrðist ekki í honum í langan tíma, þá var hann að skoða bók og við foreldrarnir litum bara hvort á annað og spurðum okkur hvort þetta væri virkilega barnið okkar. Svo lá hann líka algjörlega afslappaður á gólfinu og horfði á okkur til skiptis í heillangan tíma og við áttum bara ekki til eitt aukatekið orð. Það gæti nú líka verið að vökvinn í eyranu sé að hverfa og þá líður honum betur. En annars er Magnús farinn að sitja alveg óstuddur og dregur sig aðeins áfram á gólfinu og það er ábyggilega ekki langt þangað til hann fer að skríða. Hann lærir alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi og það er alveg meiriháttar að fylgjast með honum uppgötva hlutina. Núna er aðalsportið að skoða ljósin hvert sem hann fer. Ef maður spyr: Hvar er ljósið? Þá lítur hann alltaf upp og fer að brosa. Honum finnst líka svaka sport að vera í göngugrindinni, þá er skemmtilegast að fara í eltingaleik eða elta bolta. Svo er búið að vera svo gott veður að við höfum verið dugleg að fara út í göngutúra og leika í garðinum. Skemmtilegast er að fara út á róló sem er í götunni okkar og róla. Það er sko geggjað stuð, fer alveg að skellihlæja. Við erum einnig búin að fara í tvær helgarferðir upp í sumarbústað, fyrra skiptið þegar afi Siggi var sextugur og seinna skiptið síðustu helgi uppí bústað til afa Magga og ömmu Dóru. Er ábyggilega að gleyma fullt af hlutum, en þeir sem vilja vita meira verða bara að koma í heimsókn. Erum alltaf með heitt á könnunni (eða sko kók í ísskápnum, mamman kann ekki að hella uppá, hihi). Endilega kíkið við. Magnúsi finnst nefnilega svo gaman að fá heimsóknir, hann er stundum alveg að klepra á mömmu sinni. Kveðja úr Hlíðargerðinu p.s. það eru komnar nýjar myndir !!!!! .:: 28.5.2007 - Skrifað af :: Dóra Gunn ::. Ekkert smá sætar myndir. Endurspegla alveg karakterinn, alltaf kátur kútur .:: 1.6.2007 - Skrifað af :: þórhallur, birta og mirra ::. gaman að fá fréttir af litla frábæra frænda og ykkur. ætlum að sýna mirru nýju myndirnar strax og hún kemur heim. æðislegar myndir! ættum kannski að setja inn eitthvað af myndum af mirru á flickr, höfum ekki staðið okkur þar (roðn) .:: 19.9.2008 - Skrifað af :: kfjyvaqi ::. vFs0WZ <a href="http://yykeokldclxu.com/">yykeokldclxu</a>, [url=http://mehxvlwhporn.com/]mehxvlwhporn[/url], [link=http://tlmyoyjbgrcl.com/]tlmyoyjbgrcl[/link], http://rtbwltrblcpm.com/ |