|
||
|
.:: 8.7.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Níu mánaða gutti í dag!!! Tíminn flýgur og alltaf nóg að gera. Magnús Þór var tvisvar sinnum veikur í júní. Í byrjun júní fékk hann barkabólgu og svo um miðjan júní fékk hann 40 stiga hita í sólarhring og útbrot og læti. Þar síðustu helgi fórum við í bústað í Húsafell. Þar fórum við á brennu þar sem var dansað og sungið. Hjómsveitin Feðgarnir var sko alveg að slá í gegn, hihi. Við mæðginin skelltum okkur svo í Þórsmörk síðustu helgi til að taka á móti vinahópnum sem var að labba Laugarveginn. Það var rosa stuð. Tókum rútuna og Inga vinkona kom með. Magnús Þór var alveg að fíla sig í tætlur allan tímann og hann eignaðist fullt af öfum sem vildu ólmir fá að passa hann. Já, svo er Magnús nánast farinn að skríða, vantar bara herslumuninn. Hann dregur sig áfram á höndunum en ef hann kemst á gott teppi þá getur hann notað fæturnar líka. Svo togar hann sig upp og stendur við borð og veggi og í rúminu sínu og er farinn að vinka bæ og stundum klappa. Svo segir hann, mama mama, dada dada, baba baba og goj goj goj. Svo var hann 9230 gr og 70 cm í 8 mánaða skoðuninni. Bæ í bili. Og það eru komnar júnímyndir !!! .:: 10.7.2007 - Skrifað af :: Dóra ::. Ekkert smá fínar júnímyndirnar. Algert módel drengurinn og kann sko að bræða mann með brosinu .:: 19.9.2008 - Skrifað af :: vqmgrqp ::. efSdmb <a href="http://silhobbvmreq.com/">silhobbvmreq</a>, [url=http://zclkplwikgbz.com/]zclkplwikgbz[/url], [link=http://bhxtxfbgzfse.com/]bhxtxfbgzfse[/link], http://mooapyjguzdl.com/ |