|
||
|
.:: 30.8.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Nú er júlímánuður brátt á enda. Magnús Þór nálgast 10 mánuðina óðfluga. Við skiljum bara ekkert í þessu. Hann er bara að verða krakki, ekkert ungabarn lengur sko. Orðinn sigldur strákurinn og allt. Við skelltum okkur nefnilega til Kaupmannahafnar í síðustu viku, frá sunnudegi til fimmtudags. Þetta var algjör skyndiákvörðun hjá okkur. Fengum lánaða íbúð Auðar og Franks sem voru á Íslandi. Íbúðin er á fimmtu hæð og það er sko hægara sagt en gert að labba þar upp með barn og töskur og innkaupapoka (enda fórum við bara út snemma á morgnanna og komum heim seint á kvöldin). Við dáumst að þeim að búa þarna með lítið barn. En geggjað flott íbúð og á mjög góðum stað í bænum. En hvað gerðum við nú í Köben? Jú við löbbuðum um, kíktum í búðir, löbbuðum aðeins meira, kíktum í Tívolí, löbbuðum svo aðeins meira, hittum svo Grétu frænku alveg þrisvar sinnum og löbbuðum svo aðeins meira. Það var voða gaman að hitta Grétu og sjá hvernig hún býr sem er voða flott. Allt voða flott og fínt í Köben. Við erum bara að hugsa um að flytja þangað. Nei djók !!! Við höfum það allt of gott hér heima í litla fína húsinu okkar. Magnús er annars farinn að skríða á fullu, farinn að labba meðfram hlutum og aðeins farinn að labba með. Aðalsportið núna er að klifra upp mömmu sína og hanga í henni, hihihi. Það hefur líka aðeins bæst við orðaforðann hans. Seinast þegar við skrifuðum var hann farinn að segja mama,dada, baba og gojgoj og nú hefur bæst við gagaga, vooo og da(tt). Hann hefur óstjórnlegan áhuga á bílum og flugvélum. Hann er meira að segja farin að hreyfa hendina uppí loftið eins og flugvél og segja úúúuu þegar flugvélarnar fljúga yfir og svo segir hann brrrr brrrr þegar hann leikur sér að bílum. Hmmm hvað meira? Já, hann fékk fyrstu tönnina sína úti í Köben og er það framtönn í efri gómnum. Vei!! Annars er lítið annað að frétta. Látum myndirnar bara tala sínu máli. .:: 30.7.2007 - Skrifað af :: Dóra ::. Gleymið nú alveg að segja frá því að hann er alltaf jafn sætur og brosmildur .:: 19.9.2008 - Skrifað af :: kusoaymic ::. UjUXXh <a href="http://rlojttzzpbpm.com/">rlojttzzpbpm</a>, [url=http://zijrmpnkgzht.com/]zijrmpnkgzht[/url], [link=http://ddtfmryjhbjw.com/]ddtfmryjhbjw[/link], http://izcslcheyzhn.com/ .:: 16.1.2010 - Skrifað af :: cfdueh ::. CQnBE7 <a href="http://hnnsqgwofsnt.com/">hnnsqgwofsnt</a>, [url=http://coepssjznuxl.com/]coepssjznuxl[/url], [link=http://ayhvjxklgjdk.com/]ayhvjxklgjdk[/link], http://favpamzmmpwi.com/ .:: 12.5.2010 - Skrifað af :: klhxqjfwki ::. DK0yVu <a href="http://uyovlrvdoggr.com/">uyovlrvdoggr</a>, [url=http://sqoholfpeobb.com/]sqoholfpeobb[/url], [link=http://kvfsohngdxef.com/]kvfsohngdxef[/link], http://hjcnchpqnhov.com/ .:: 12.5.2010 - Skrifað af :: mblfeykm ::. Lx0nmK <a href="http://hwtnolovanex.com/">hwtnolovanex</a>, [url=http://ssyzzkjlbtww.com/]ssyzzkjlbtww[/url], [link=http://mdblpwdwpuqf.com/]mdblpwdwpuqf[/link], http://ianbosbpshau.com/ |