|
||
|
.:: 31.8.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jæja, þá er sumarið brátt á enda þó það sé nú eiginlega bara rétt að byrja hjá okkur. Pabbinn bara nýkominn í sumarfrí og svona. Við skruppum til Akureyrar um daginn og fengum þvílíkt gott veður. Fórum m.a. í sund, slöppuðum af í Kjarnaskógi og skoðuðum Laufás. Svo fengum við okkur náttúrulega ís í Brynju,borðuðum á Greifanum og Bautanum og löbbuðum bæinn þveran og endilangan og fórum á kaffihús svo eitthvað sé nefnt. Í næstu viku erum við svo að fara til Spánar í tilefni sextugsafmælis ömmu Dóru. Þá munum við öll fjölskyldan, 14 talsins, vera saman í þvílíkt flottri Villu uppí sveit, 30 mínútum frá Alicante. Það verður ábyggilega svaka fjör. Við hlökkum allavega geðveikt mikið til. Annars er bara the same old same old. Magnús alltaf hress og kátur og svona. Það allra skemmtilegasta núna er að skríða upp og niður tröppurnar heima, foreldrarnir alveg komnir með harðsperrur og læti. Enda er næst á dagskrá að setja hlið fyrir stigann. Tennurnar spretta svo upp eins og gorkúlur. Kominn með tvær tennur uppi og tvær niðri núna á einum mánuði. Svo er alltaf að bætast við orðaforðann hans. Núna er það goglí goglí, adda adda og fleira óskiljanlegt. Svo fyrir þá sem hafa áhuga á tölum þá vóg hann 10.070 gr og var 73 cm í 10 mánaða skoðuninni. Bless í bili, Hlíðargerðisfjölskyldan ógurlega .:: 31.8.2007 - Skrifað af :: Dóra ::. Alveg væri ég til í Alicante .:: 19.9.2008 - Skrifað af :: sztlaew ::. QLepdb <a href="http://bqzeuskzytae.com/">bqzeuskzytae</a>, [url=http://hapnqtcrhryi.com/]hapnqtcrhryi[/url], [link=http://xygsqanhsbyt.com/]xygsqanhsbyt[/link], http://tnqgxnwcvhpk.com/ |