.:: 10.10.2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.

Þá er sumarið loksins búið hjá okkur og veturinn bara á næsta leiti. Við fórum sem sagt til Spánar í byrjun september og vorum í 12 daga í tilefni sextugsafmæli ömmu Dóru. Það var svaka fjör, öll fjölskyldan saman komin. Magnús fékk reyndar í magann og leið ekki alveg nógu vel en honum fannst nú samt rosa gaman þrátt fyrir það.

Svo fórum við hjónaleysin til Parísar í lok september í árshátíðarferð með vinnunni hans Hauks og var Magnús hjá öfunum og ömmunum á meðan. Það gekk alveg súper vel. Rosa þægur og góður drengurinn.

Magnús átti svo 1 árs afmæli núna 6. október og var afmælið haldið upp í sumarbústað og kom fullt fullt af fólki. Og hann fékk alveg fullt fullt af pökkum sem hann hafði akkúrat engan áhuga á að opna en hann er samt voða ánægður núna með allt saman. Rosa gaman að fá nýtt dót til að leika við og ný föt til að vera í.

Nú er aðalsportið þessa dagana að benda á það sem hann vill og öskra. Hann er sko mjög ákveðinn drengurinn, veit alveg hvað hann vill og hvað ekki.  Til dæmis vorum við að smakka bláber, jarðaber og vínber um daginn og fannst honum allt voða gott en jarðaberin voru best þannig að hann benti bara á þau og öskraði. Gott samt að geta gert sig skiljanlegan. Svo er hann nýfarinn að taka upp á því að leggjast í gólfið og væla eða fetta sig aftur ef hann verður eitthvað pirraður. Til dæmis fékk hann bíl í afmælisgjöf sem er með loki á sem er hægt að opna og loka en það er samt svolítið erfitt að ná taki á lokinu og þegar það ekki gengur þá er bara lagst í gólfið og vælt. Dálítið fyndið. Annars er hann nú yfirleitt í góðu skapi, sem betur fer. Stundum trúum við bara ekki hvað við eigum þægan og góðan strák.

Bæ í bili


.:: 15.10.2007 - Skrifað af :: Audur og co. ::.

Til hamingju med daginn!! Va hvad madur er oridnn stor! Og algert beauty  Hlakka til ad hitta ykkur oll thegar vid komum heim um jolin. Silja bidur ad heilsa (th.e. eveeeve aaabababaaa mmmmee)
Knus fra Køben


.:: 23.10.2007 - Skrifað af :: Maren og Freyja Sigríður ::.

Okkur gengur aldrei að skrifa í blessuðu gestabókina þrátt fyrir fjöldamargar tilraunir. Þá er best að prófa bara skilaboðin:
Til hamingju með afmælið öllsömul!


.:: 19.9.2008 - Skrifað af :: wvrqbzov ::.

5kAJsz  <a href="http://qzpuvdarzeyo.com/">qzpuvdarzeyo</a>, [url=http://jsvfzdbjefwp.com/]jsvfzdbjefwp[/url], [link=http://guvjshqcoove.com/]guvjshqcoove[/link], http://dsikimwwfhvh.com/


.:: 28.4.2010 - Skrifað af :: rhoabkzxd ::.

dYikeZ  <a href="http://czmnkkuztpby.com/">czmnkkuztpby</a>, [url=http://oenimkcfbvrm.com/]oenimkcfbvrm[/url], [link=http://pxlwfnpaxlkv.com/]pxlwfnpaxlkv[/link], http://psvobgpwgzlv.com/


Nafn:
Skilaboð: