|
||
|
.:: 11/3/2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Ein ég sit og sauma inn í litlu húsi. Nú er Magnús að taka lúrinn sinn og þá sest ég yfirleitt niður og sauma. Nei, djók. Þá sest ég oftast niður og kíki í tölvuna og geri hitt og þetta. Ákvað sem sagt núna að skrifa nokkrar línur um hann Magnús okkar. Magnús er hress og kátur að vanda. Síðast þegar ég skrifaði þá var hann nýorðinn eins árs og farinn að vera með einhverja pirrings stæla, leggjast niður og stappa fótum og eitthvað. Ég held að hann hafi bara ekki alveg verið tilbúinn að verða eins árs og tók það út svona í nokkra daga því hann er alveg hættur þessu núna. Sem sagt orðinn ánægður með aldurinn, hehe. Hann gengur meðfram öllu og klifrar uppá borð og stóla og stendur stundum einn og óstuddur en hann er ekki farinn að labba. Held það verði svolítið í það, hann er voða varkár. Svo er hann farinn að tala voða mikið. Hann segir mama, pabba, ama, ava, datt, dudda, ebe (vínber og jarðaber), ke (kex), bana (banani), sja(sjáðu), sko(skór) og hæ. Svo hermir hann eftir fullt af hljóðum eins og bílum, flugvélum og klukkunni (tik tak tik tak). Og dýrahljóðum eins og apanum, hestinum, hundinum, ljóninu, kisunni o.fl. Annars erum við nú bara mest heima að leika, sérstaklega þegar það er vont veður. Ég byrjaði reyndar í leikfimi í síðustu viku og Magnús fer í pössun á meðan og það finnst honum æði. Loksins einhverjir aðrir til að leika við en bara mamma. Svo förum við í sund einu sinni í viku, mömmumorgna einu sinni í viku, frændsystkinahitting og búðaráp o.fl. ofl. þannig að það er nú alveg nóg að gera. p.s. Það eru komnar fleiri myndir frá október .:: 19.9.2008 - Skrifað af :: stmxbnewc ::. hrFYTx <a href="http://hcnuwaawyhsw.com/">hcnuwaawyhsw</a>, [url=http://nupjfzcefmtl.com/]nupjfzcefmtl[/url], [link=http://xrsojnemunfg.com/]xrsojnemunfg[/link], http://eankcfsjsaqn.com/ |