|
||
|
.:: 12/3/2007 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Bráðum koma blessuð jólin, börnin fara að hlakka til.... Jebbs, Magnús er sko alveg að deyja úr spenningi yfir jólunum. En nóvembermánuður hefur verið kvef og hósta mánuðurinn mikli hjá honum Magnúsi okkar og svo fékk hann líka barkabólgu og bronchitis en hann er allur að jafna sig á því. Hins vegar er hann alltaf með einhvern leiðinda niðurgang, gaman gaman. En það hefur sko ekki sést á honum að hann hafi verið eitthvað veikur því hann hefur aldrei verið jafn hress og skemmtilegur. Hann er svooooo ánægður með lífið drengurinn (nema þegar hann fær ekki eitthvað sem hann vill, þá er sko heimsendir á næsta leiti, hihi). Svo er hann líka farinn að sofa svo lengi á morgnanna sem er algjör lúxus. En það sem Magnúsi finnst skemmtilegast þessa dagana er að ryksuga og að dansa. Hann bendir á geymsluna til að fá ryksuguna og svo bendir hann á útvarpið til að fara að dansa. Og ef það er ekki nógu skemmtilegt lag í útvarpinu þá bara skiptir hann um stöð. Honum finnst teknó langskemmtilegast, þá dillar hann sér í takt við tónlistina af miklum ákafa. Ætla að setja inn videó fljótlega til að sýna ykkur. Endilega fylgist með !!! Magnús á nokkrar bækur og hann er farinn að kunna þær allar utanað. Ein bókin er um kisur sem eru að leika sér að bolta og svo dettur boltinn út í ána. Magnús hefur miklar áhyggjur af boltanum, bendir og bendir á boltann og verður ekki rór fyrr en við flettum á næstu blaðsíðu þar sem hundur kemur og bjargar boltanum. Svo þekkir hann nánast öll 100 orðin í bókinni „Fyrstu hundrað orðin“. Ef við spyrjum um eitthvað, t.d. borvélina, þá flettir hann upp á þeirri blaðsíðu og bendir á. Voða duglegur. Svo er ein bók sem við lesum yfirleitt fyrir háttinn sem honum finnst mjög gaman að skoða. En stundum ef hann er orðinn voða sybbinn þá bara flettir hann strax uppá síðustu blaðsíðunni og bendir á strákinn sem er sofandi í rúminu sínu og það þýðir bara að hann vill fara strax að lúlla. Þá bara sitjum við hann í rúmið og hann er sofnaður eftir nokkrar sek. Svo er alltaf að bætast við orðaforðann. Bæbæ, hæææææ, hoppa og gúgú er nýjasta nýtt. Látum þetta nægja í bili, Hlíðargerðisfjölskyldan .:: 3.12.2007 - Skrifað af :: Dóra ::. Ó mæ, nú er Magnús farinn að apa það eftir pabba sínum að grandskoða alla auglýsingabæklinga... .:: 7.12.2007 - Skrifað af :: Pabbinn ::. hmm, bara ef það eru auglýsingar með verkfærum eða bílum .:: 19.9.2008 - Skrifað af :: uzlmcj ::. NKq04I <a href="http://gjjlvvkpliwc.com/">gjjlvvkpliwc</a>, [url=http://xbjccpglionr.com/]xbjccpglionr[/url], [link=http://yjhoqgrqzwmc.com/]yjhoqgrqzwmc[/link], http://iovewkopyist.com/ |