|
||
|
.:: 20.1.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Jidúddamía !!! Janúarmánuður bara meira en hálfnaður áður en maður veit af. En desembermánuður var skemmtilegur mánuður. Pabbinn byrjaði í feðraorlofinu sínu og mamman var í fríi líka. Hún skellti sér í nokkra daga í húsmæðraorlof til Þýskalands með vinkonum sínum. Þar skemmti hún sér þvílíkt vel við að labba um jólamarkaðina, versla jólagjafir og borða góðan mat í góðra vina hópi. Svo höfðum við fjölskyldan það fínt um jólin. Magnús var reyndar veikur milli jóla og nýárs, var með hita í 4 daga og fékk barkabólgu og bronchitis. En hann var góður á aðfangadag og var svo aftur orðinn frískur á gamlársdag þannig að hann slapp ágætlega. Magnús byrjaði svo hjá dagmömmu í byrjun janúar og honum finnst ógeðslega gaman. Mamman byrjaði líka að vinna í byrjun janúar, svolítið skrítið eftir að hafa verið í orlofi í 15 mánuði en líkar mjög vel. Pabbinn er áfram í feðraorlofi í janúar og byrjar svo í nýju vinnunni, Glitni, í lok janúar. Spennó, spennó. Magnús er nú farinn að labba, byrjaði bara nokkrum dögum eftir 15 mánaða afmælið sitt. Og svo er hann alltaf að læra ný og ný orð. Gaman gaman. Kveðja, Hlíðargerðisfjölskyldan ógurlega p.s. Það eru komnar nýjar myndir frá desember og svo ætlum við að setja inn videó á næstu dögum .:: 29.1.2008 - Skrifað af :: Dóra ::. Magnús er farinn að sýna ferlega töffaratakta, spurning um að pabbinn geymi BMW-inn fyrir piltinn... hann verður kannski tilbúinn þegar Magnús verður 17?? .:: 19.9.2008 - Skrifað af :: qdryusd ::. ZsM2Md <a href="http://emyylvjloihq.com/">emyylvjloihq</a>, [url=http://vzsdhjxzvovi.com/]vzsdhjxzvovi[/url], [link=http://owyiuzguesbj.com/]owyiuzguesbj[/link], http://fxfqsxzeiuht.com/ .:: 16.1.2010 - Skrifað af :: lcvskiw ::. vIupNI <a href="http://nyrreryqqrjx.com/">nyrreryqqrjx</a>, [url=http://kolwxohfdqto.com/]kolwxohfdqto[/url], [link=http://utcmqciwmfzm.com/]utcmqciwmfzm[/link], http://tfwahkfnzbya.com/ |