.:: 22.5.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.

Hæ hæ. Díses, bráðum 2 mánuðir síðan við skrifuðum seinast. Jæja, en héðan er allt gott að frétta að vanda.  Nú fer Magnús alveg að verða 19 mánaða. Hann er orðinn 12,2 kg og 82,5 cm. Hann er að fíla sig í botn hjá dagmömmunni, vinkar bara bæbæ þegar við förum með hann og vill varla fara heim þegar við sækjum hann. Svo byrjar hann á leikskóla í ágúst eða september. Það verður stuð !!!

En Magnús er búinn að vera þokkalega hress undanfarið, fékk reyndar flensuna í lok mars ásamt pabbanum og fékk svo smá hita í 3 daga núna í lok apríl. Annars bara SÚPER hress.   

Mamman fór  til Svíþjóðar í 5 daga með vinkonum sínum í byrjun apríl og var það ofboðslega gaman. Þegar hún kom heim voru feðgarnir búnir að fara í klippingu og henni fannst Magnús sinn hafa elst um nokkur ár við það. Orðinn svaka fullorðinslegur.

Svo fórum við skötuhjúin til London núna í lok apríl í árshátíðarferð með nýju vinnu pabbans. Jebbs, pabbinn er sem sagt hættur hjá Glitni og farinn að vinna hjá Eskli.  Þetta var þvílíkt notaleg ferð. Alltaf gaman að koma til London.

En nú er sumarið komið og við erum farin út að leika. Heyrumst síðar, vonandi sem allra fyrst. Endilega kíkið á nýju myndirnar (sem eru nú ekki margar í þetta sinn). Setjum svo inn ný myndbönd fljótlega.


.:: 19.9.2008 - Skrifað af :: tgzzxubo ::.

1DERRv  <a href="http://ydylatmdrfsh.com/">ydylatmdrfsh</a>, [url=http://mebndiooguvy.com/]mebndiooguvy[/url], [link=http://sdnvfihgfykp.com/]sdnvfihgfykp[/link], http://hggeofbojhej.com/


.:: 12.5.2008 - Skrifað af :: Ketill Gauti ::.

Jóhó frændi, sjáumst í hjólatúr...


Nafn:
Skilaboð: