.:: 9.11.2008 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.

Nú er stráksi orðinn 2 ára. Afmælið gekk mjög vel. Það komu um 20 manns á sunnudeginum og svo 17 manns í mat á mánudeginum.  Magnús var mjög ánægður með sig. Hann fékk fullt af flottum og skemmtilegum pökkum. Hann fékk líka kórónu á leikskólanum og þar var sungið og dansað. Leikskólakennarinn sagði að hann hafi sungið afmælissönginn allan daginn. Svo hélt hann því líka áfram allan mánuðinn.

Magnús er farinn að kunna mörg lög utanað, lög sem hann lærir á leiksólanum og við ekki kunnum og er með hreyfingarnar alveg á hreinu. Við syngjum alltaf saman áður en hann fer að sofa, stundum segir hann ,,mamma (eða pabbi), ekki þú syngja“ og þá syngur hann Dvel ég í draumahöll alveg sjálfur, allt lagið. Algjör dúlla.

Magnús og Grímur frændi byrjuðu í Litla íþróttaskólanum í september og finnst þeim það algjört æði. Grímur var svo hjá okkur alla þarsíðustu helgi og voru þeir algjörir englar. Rosa duglegir að leika saman og að skiptast á, þ.e. með smá leiðsögn. Þeir vildu stundum hafa sama dótið en þá kenndum við þeim að telja uppá fimm og skiptast svo á. Og voru þeir svo byrjaðir á því alveg sjálfir einir inní herbergi. Rosa sætt. Gaman að fylgjast með þeim.

Segum þetta gott í bili, endilega kíkið á nýjar myndir.


.:: 17.11.2008 - Skrifað af :: cqvtdcmv ::.

JAfpGl  <a href="http://jgvybztbuuee.com/">jgvybztbuuee</a>, [url=http://jcjzlbvpgpcc.com/]jcjzlbvpgpcc[/url], [link=http://uxsgidmqrarz.com/]uxsgidmqrarz[/link], http://lrmyegyiqblj.com/


.:: 16.1.2010 - Skrifað af :: uqbmzzx ::.

NJpgpI  <a href="http://kzktyfgjysyc.com/">kzktyfgjysyc</a>, [url=http://iqbtbcwqqhgg.com/]iqbtbcwqqhgg[/url], [link=http://kfqdzghnlysz.com/]kfqdzghnlysz[/link], http://jcwnjqrgqmoc.com/


Nafn:
Skilaboð: