.:: 12.1.2009 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.

Gleðilegt nýtt ár !!!

Við höfðum það rosa gott um jólin og áramótin, allir frískir og glaðir.

Magnús er farinn að tala svakalega mikið. Það kom reyndar ein vika þar sem hann stamaði all svakalega og við vorum farin að hafa miklar áhyggjur en svo er þetta víst alveg eðlilegt á þessum aldri og er sem betur fer horfið að mestu núna.

Magnús er svolítið að lemja frá sér og ýta í aðra í staðinn fyrir að segja Nei, ég vil ekki. Þeir eru nokkrir á leikskólanum sem gera þetta. Hann er líka mikið að pæla í þessu núna. Hann sagði til dæmis um matarborðið um daginn: ....... ekki góður, hann lemja mig á leikskólanum. Svo sagði hann við pabba sinn í bílnum: Pabbi, þú ert góður, þú ekki lemja Magnús. Magnús góður, ég ekki lemja pabba. Svo sagði hann við mömmu sína einnig í bílnum um daginn: Mamma, þú ert góður vinur minn, ég elska þig.

Svo er Magnús orðinn algjör púslisti. Hann gjörsamlega elskar að púsla. Hann fékk nokkur lítil púsl í skóinn frá jólasveininum með 10 púslum og sá jólasveinninn að það var allt of auðvelt fyrir hann. Svo fékk hann Leiftur McQueen púsl með 15 púslum í jólagjöf og getur hann púslað það blindandi og svo fékk hann líka Bangsímon púsl með 30 púslum og getur hann líka púslað það en reyndar með smá hjálp. Algjör snillingur.

Jæja, segjum þetta gott í bili

 


Nafn:
Skilaboð: