|
||
|
.:: 11.2.2010 - Skrifað af :: Haukur Sigurðsson ::.
Við tókum engar myndir í janúar þannig að ég skrifa bara eitthvað skemmtilegt í staðinn, t.d. nokkur samtöl sem Magnús hefur átt við okkur foreldrana. Í vikunni vorum við mæðginin að labba heim frá leikskólanum og einn daginn hljóp Magnús á undan mér. Ég kallaði á hann og sagði honum að stoppa og sagði ákveðið að það mætti ekki hlaupa á undan því það gætu komið bílar. Daginn eftir stoppaði Magnús við tré í smá stund eitthvað að skoða og þá labbaði ég aðeins á undan. Þá sagði Magnús með mjög ákveðinni röddu: „ Mamma, ekki fara á undan, það getur verið hættulegt. Er ég glaður núna (og setur á sig mikinn reiðisvip og smá glott líka)?? Ha??Er ég glaður?? Nei, ég er sko reiður." (hann er að læra um tilfinninguna reiði í leikskólanum þessa vikuna.) Magnús er nýbúinn að læra orðið: „ dáinn“ því bæði afi Hauks og amma dóu í janúar og hann er mikið að velta því fyrir sér. Það voru t.d. vettlingar í hólfinu hans á leikskólanum um daginn sem Magnús átti ekki og við vorum að velta því fyrir okkur hver ætti þá. Við sáum að þeir voru ómerktir og Magnús vildi setja þá í hólf sem var ómerkt. Ég spurði þá hvort enginn ætti þetta hólf. Þá sagði Magnús: „Nei, hann bara dáinn“ og svo var hann líka að spyrja hvar bíll nágrannans væri eiginlega (nágranninn einnig nýlega fallinn frá) og við sögðum að kannski væri búið að selja bílinn því að gamli maðurinn væri dáinn. „Ó já“, sagði Magnús. „En er konan hans þá bara alein heima?“ Hvert fór hann eiginlega? Við sögðum að hann hefði farið upp til himna. „ En hvernig kemst hann eiginlega niður?“ Magnús er ekkert smá spenntur yfir komu nýja systkinisins og þegar hann frétti af því (einhvern tíman fyrir jól) þá sagði hann: „Mamma, þú verður að prjóna bláa íþróttaálfapeysu fyrir strákinn og bleika peysu fyrir stelpuna og svo verðum við að kaupa tvo vagna, einn fyrir strákinn og einn fyrir stelpuna.“ Hann hélt greinilega fyrst að börnin væru tvö. Svo þegar hann talar um eitthvað sem við munum gera í framtíðinni þá nefnir hann alltaf litla barnið líka. Hann vill hafa það með í að gera hitt og þetta. Hann var meira að segja að telja hvað við værum mörg á heimilinu og taldi hann litla bumbubúann með. Algjör dúlla. Svo einu sinni var Ketill Gauti frændi í heimsókn og hann var að spila á mjög háværa flautu sem fullorðna fólkið var að reyna að ná af honum. Þá kom Magnús bara askvaðandi að honum og tók af honum flautuna og sagði mjög ákveðið: „ Litla barnið vill ekki svona læti, það er að hvíla sig inní bumbunni á mömmu“. Við höfum tekið eftir því undanfarið að Magnús er alveg afskaplega kurteis strákur. Haukur hafði sett Diego þætti inná sjónvarpstölvuna og ég sagði Magnúsi frá því. Hann var svakalega spenntur og fékk að horfa á einn þátt. Klukkutíma seinna kom Haukur heim og það fyrsta sem Magnús sagði algjörlega óumbeðinn var: „Takk pabbi, fyrir að setja Diego inná tölvuna fyrir mig.“ Og þetta gerir hann bara ansi oft algjörlega óumbeðinn. Þannig að kurteisisuppeldið er greinilega að skila sér eitthvað, hehe. Hann er nú samt ekki alltaf svona kurteis og góður. Það væri nú lygi ef maður sagði að 3 ára barn væri ALLTAF þægt og gott. Hann tók tímabil í janúar þar sem hann fór að öskra og vera með einhver leiðindi og frekju við okkur foreldrana en það er nú eiginlega alveg búið núna sem betur fer. Úff, ég sé það að ég gæti skrifað endalaust en ég læt þetta nægja í bili. Kv, Anna Lillý og Hlíðargerðispakkið .:: 18.3.2010 - Skrifað af :: towelyyj ::. S0OlTz <a href="http://fvbirusstvld.com/">fvbirusstvld</a>, [url=http://uovadhltoyhu.com/]uovadhltoyhu[/url], [link=http://pnvgqaeigmtr.com/]pnvgqaeigmtr[/link], http://dccrrymdnmlx.com/ .:: 5.4.2010 - Skrifað af :: mdugsby ::. 6s7gaP <a href="http://wrekiicemrak.com/">wrekiicemrak</a>, [url=http://nieabrmtwmgg.com/]nieabrmtwmgg[/url], [link=http://slyfoatchloc.com/]slyfoatchloc[/link], http://cvarhmtkxpgy.com/ |